miðvikudagur, mars 02, 2005

ég veit, ég veit..
mikið að gera í vinnunni og ég sit fyrir framan tölvuskjáinn þangað til ég neyðist til að fara heim.. smá svona lokaverkefnisfílingur svei mér þá.. og svo þegar ég er komin heim er ég ekki að nenna að kveikja aftur á tölvunni.. þá þarf ég nefninlega að hvíla mig :o)
Ekkert merkilegt svossem í fréttum.. Hrafnhildur er að fara að halda uppá afmælið sitt um helgina.. og mér er boðið.. hún verður þrítug, stelpan.. og það segir mér bara eitt ..ég er að verða fullorðin, svei mér þá .. eða það hlýtur allavega að vera, má ekki einu sinni taka þátt í Idolinu af því að ég er orðin of gömul, börnin mín eru næstum því orðnir unglingar, allavega farnir að hlusta á þungarokk og fyrir mér er það sko merki um unglingsár.. litli bróðir sem fæddist þegar ég var 19 ára er orðinn stærri en ég og sko mikið stærri.. .. æhj ég veit það ekki.. mér finnst ég nú samt bara vera hálfgerður krakki ennþá..