mánudagur, mars 14, 2005

Jæja, þá er það helgin..
ekkert smá ógó gott veður á föstudaginn, fór í löns með Stellu og keypti slatta af tojjara af henni.. svo þegar ég kom í vinnuna aftur beið mín ís með heitri súkkulaðisósu.. ekkert smá næs maður..
fór svo bara heim og sótti Palla, fórum í Húsasmiðjuna (eina ferðina enn) að kaupa síðasta júnitið sem þurfti til að fullkomna skildina sem strákarnir eru búnir að vera að smíða.. svo eldaði Palli sæti pizzu handa okkur og við horfðum á Idolið.. og ég verð að segja.. ég var bara nokkuð sátt svona.. Heiða var reyndar mun betri á föstudaginn en Hildur Vala búin að vera góð alla keppnina.. þannig að það má segja að þetta hafi verið nokkuð fair..
Sinnti svo bara hefðbundnum heimilisstörfum á laugardaginn og svo fórum við Hrafnhildur og Sunna Kristín að heimsækja Döddu bumbulínu og Guðrúnu, síðan var bara eldað gott og legið í leti..
Sunnudagurinn hófst með því að við fórum og keyptum okkur ís í hádegismat, rúnntuðum smá .. sem var bara gaman.. svo komu Heiða og Pétur og ég bakaði verstu vöfflur sem ég hef bakað á æfinni.. og svo bara Jack Bauer og Nip/Tuck um kvöldið.. ótrúlega næs bara... og svo fer bara að koma páskafrí.. ohh þá ætla ég að gera nákvæmlega ekkert, bara lesa, prjóna, horfa á TV og borða súkkulaði.. hversu næs er það..
úff.. ég er svo þreytt í puttunum að ég get varla pikkað..